föstudagur, september 30, 2005

Þegar ég kom heim í gær beið eftir mér auglýsing frá Eddu útgáfu þar sem verið var að auglýsa svona nokkurs konar klúbb með yfirskriftinni "Lærðu allt um snyrtingu og förðun! ...skref fyrir skref". Þetta er semsagt klúbbur sem hægt er að skrá sig í og fá kennsluefni í hverjum mánuði og einhverjar snyrtivörur fylgja með. Einhvern vegin þá hef ég aldrei lært almennilega að mála mig maður einhvern vegin gerir bara eitthvað og hefur svona séð hvernig fólk gerir og reynt að herma. Þannig ég ákvað að skrá mig í þennan klúbb og athuga hvort ég geti eitthvað lært að mála mig og orðið meiri pæja. Það er hægt að sjá meira um þetta á www.klubbar.is.
Mér finnst þetta allavega rosalega sniðugt :)

3 Ummæli:

Anonymous Nafnlaus sagði...

Já þetta er rosa sniðugt, nú verður þú bara að kenna okkur hinum!! Rosa gaman að hitta þig í dag, hlakka svo bara geggjað til að koma suður í verknám og geta hitt ykkur oftar!!!
Oddný

5:36 e.h.  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Mér líst alveg svakalega vel á þetta. Nú verður þú að gefa okkur nokkur góð ráð áður en við förum á djammið. Fyrsta kennslustund er fyrir afmælið mitt, sem ég er að spá í að halda um næstu helgi. Taktu frá laugardaginn!!!! Kveðja Petrína

8:45 e.h.  
Blogger Regína sagði...

Mér finnst þú nú bara alltaf pæja fyrir:)

11:44 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Heim