miðvikudagur, september 14, 2005

Einhvern vegin þá finnst mér svo margir búa í útlöndum þetta árið eða ekki í Reykjavík þannig eina ráðið var bara að byrja að blogga svo hægt sé að fylgjast aðeins með manni. Ótrúlegt hvað þetta Internet er magnað, Sæunn og Sóley eru t.d. alveg lengst í burtu en samt get ég alveg fylgst með þeim og séð myndir af prinsessunni og allt. Vá hvað mig langar að heimsækja þær, ég er alveg komin með margar ástæður til að fara til Bandaríkjanna. Mig vantar svooo nærföt frá Victorias Secret, þarf að komast í GAP, vantar föt og ýmislegt sem ekki er hægt að versla neins staðar nema í USA heheh...

Annars hlustaði ég á nýja Sigurrósardiskinn í gær, Takk og hann er bara hreint ekki slæmur. Ég mæli alveg með honum.

Það styttist annars mikið í haustfagnað hérna í vinnunni, við leggjum af stað á föstudaginn kl. hálf 2 í rútu í óvissuferð, svo út að borða um kvöldið og Sálarball á Nasa. Ég hlakka ekkert smá til.

Ég keypti mér annars gallabuxur í gær og hafði nú alveg frekar mikið fyrir því, keyrði alla leið inn í Hafnarfjörð því þær áttu að fást í búð þar. Þær voru til og allt í gúddí en þá þurfti ég að stytta þær og það tekur viku að stytta þær í þessari búð þannig ég fékk að fara með þær heim til saumakonunnar til að geta fengið þær fyrir helgina (nota bene það var þriðjudagur í gær og hún ætlar að REYNA að ná þessu fyrir föstudag). Allavega....svo kem ég heim og þá frétti ég að þessar buxur fást í búð í Kringlunni og eru 1.000 kr. ódýrari en ég keypti þær á og það kostar 500 kall að stytta í þeirri búð og það er tilbúið daginn eftir (ég þarf að borga 1.200). Arggg..frekar pirrandi að kaupa sér eitthvað og komast að því að þetta hefði getað verið 1.700 kr ódýrara en ég er að borga, en ég bara nennti ekki að eyða meiri tíma í þessar blessuðu buxur.
Eins gott bara að ég verði ánægð með þessar blessuðu buxur heheh..

5 Ummæli:

Anonymous Nafnlaus sagði...

Hvaða merki eru þessar buxur?
Það eru Sigur Rósar tónleikar hér í október, kannski ætla eg að skella mér, sé til

8:05 e.h.  
Blogger Unnur Ylfa sagði...

Veistu ég veit ekki einu sinn hvaða merki þessar buxur eru heheh...fannst þær bara svo flottar.

Ég myndi pottþétt fara á þessa tónleika, þú verður að reyna að redda þér disknum. Ég gæti brennt hann og sent hann til þín :)Ég hef einu sinni farið á Sigurrósartónleika í Háskólabíó og þeir voru rosalega góðir þannig ef þú fýlar tónlistina þ.e.a.s.

10:07 f.h.  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Ég fór á tónleika með þeim hérna í Köben í júlí. Þeir voru mjög góðir, tóku fullt af gömlu lögunum líka.

10:15 f.h.  
Blogger Inga sagði...

ohh mig langar í flottar gallabuxur! Ég hef ekki ennþá fundið neinar hér í útlandinu, en ég mun halda áfram að leita!

6:04 e.h.  
Blogger Unnur Ylfa sagði...

Jebb keypti mér eins buxur og mamma, pælið í því. Ég er að herma eftir mömmu því mér fannst þær svo flottar. Spurning hvor er meiri skvísa á heimilinu. Mér sýnist ég verða að fara að taka mig eitthvað á.

Nú verð ég að vera dugleg að blogga Oddný, heheh..þvílík pressa á manni að standa sig :)

1:27 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Heim