Ég skilaði inn uppkasti á miðvikudaginn af ritgerðinni og fékk það aftur í dag, hann var ekkert smá fljótur að lesa yfir sem er gott fyrir mig. Nú er það bara að fínpússa þetta og leggja lokahöndina og koma þessu heim og saman. Það eru skil akkúrat eftir eina viku, ég væri nú samt alveg til í að geta skilað á miðvikudaginn en sjáum til hvort ég nái því.
Annars er ég að fara í vinnuferð út á land á morgun, leggjum af stað í fyrramálið og komum heim í hádeginu á laugardaginn og eftir það verður bara ritgerðamaraþon fram að skilum.
Annars er ég að fara í vinnuferð út á land á morgun, leggjum af stað í fyrramálið og komum heim í hádeginu á laugardaginn og eftir það verður bara ritgerðamaraþon fram að skilum.

0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Heim