fimmtudagur, september 16, 2004

Ég má til með að skrifa nokkrar línur núna þar sem ég er búin að fá báðar einkunnirnar mínar og get ég tilkynnt að ég náði báðum prófunum fínt þannig það stefnir allt í útskrift í október. Ég er búin með öll fögin og á bara eina ritgerð eftir sem er nú ekki mikið þegar maður er búinn með 39 fög og bara eitt eftir. Akkúrat 2 vikur í ritgerðaskil og ÆTLA ég mér að ná að skila á réttum tíma.

Ég er byrjuð í nýju starfi í vinnunni sem mér líst rosalega vel á og hlakka ég til við að glíma við öll verkefnin þar.
Frekar skrýtin tilhugsun að vera "bara" að vinna núna og ekki vera neitt í skóla en ég verð nú að viðurkenna að ég hlakka mikið til desembermánaðar þar sem ég þarf ekki að vera í próflestri.

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

<< Heim