laugardagur, september 11, 2004

Ég var aðeins búin að setja inn nokkrar myndir frá Fimmvörðuhálsinum í sumar en er ekki búina þannig það eru fleiri myndir sem bætast við þar á næstunni.
Ég er ekki alveg að setja þessar myndir inn í réttri röð en whatever, skiptir svosem ekki miklu máli.

Það sem ég er aðallega að bralla þessa dagana eru ritgerðasmíð og vinna, planið var að vera í fríi alla síðustu viku og vinna í ritgerðinni en í staðin er ég búin að vera að vinna slatta og læra reyndar líka. Ég næ ekki að klára uppkastið áður en ég byrja að vinna (á þriðjudaginn) þ.e. í nýja starfinu þannig nú verð ég að vera dugleg á kvöldin og um helgar næstu vikurnar. Það eru skil 30.sept og bara eins gott að ég nái því, það lítur út fyrir að það sé frekar erfiður tími framundan því ég held það sé ekki auðvelt að vinna frá 9-5 á daginn og læra frá 6-12 á kvöldin en það er að sjálfsögðu allt hægt og þegar mikið liggur við þá er maður vonandi bara orkumeiri :)
Ég verð nú að viðurkenna það að það verður ansi ljúft að klára þessa ritgerð og get ég varla beðið eftir þeim degi.

Er ekki málið að skella sér bara á djammið í kvöld eftir svona svartsýnistal og reyna að gleyma þessari ritgerð a.m.k. fram á morgun hehe... það er saumaklúbbspartý heima hjá Ástu og er mikil stemning, búið að leggja í púkk og ein ætlar að kaupa í Mohito og við erum allar orðnar rosa spenntar þannig ég spái stórskemmtilegu kvöldi hjá okkur viðskiptafræðigellunum.

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

<< Heim