miðvikudagur, ágúst 18, 2004

Lærdómurinn gengur ágætlega, núna er það bara harkan sex. Ég reyni að læra eins mikið og ég get og geri eiginlega ekkert annað. Er bara hérna ein með sjálfum mér að hugsa um reikningshald allan liðlangan daginn og bara þar til ég fer að sofa :) nei kannski ekki alveg, maður má nú ekki alveg ofgera sér.

Á þriðjudaginn kl. 17:30 lýkur prófum hjá mér a.m.k. í bili og það verður eflaust ljúft að labba út úr síðasta prófinu í Háskóla Íslands (hehe...eins gott að ég falli ekki, myndi ekki meika það)

Hlynur, Björk, Regína og Bjössi eru öll að flytja til Danmerkur á næstu dögum, verður súrt að missa þau öll en maður verður bara að skella sér út og heimsækja þau. Ef ég skoða ferðir mínar til Kaupmannahafnar síðustu ár þá held ég að það sé eiginlega bara alveg öruggt að það verði ekki langt þar til ég mæti í heimsókn. Reyndar búin að fara einu sinni á þessu ári til Köben en aldrei að vita nema maður skelli sér aftur eða bara á næsta ári. Alltaf svo nice í Danaveldinu, svo fínar búðir til að versla í og margir til að heimsækja :)

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

<< Heim