sunnudagur, júní 06, 2004

Ég má til með að segja ykkur að ég fór í leikhús á fimmtudagskvöld að sjá Romeo og Júlíu í Borgarleikhúsinu og vá þetta var ein skemmtilegasta sýning sem ég hef farið á. Þú bara mátt hreinlega ekki missa af þessari sýningu, þegar ég labbaði út úr salnum þá hugsaði ég strax með mér "Þetta verð ég að sjá aftur". Kannski ekkert skrýtið hvað þetta var flott og skemmtilegt þar sem þessi leikhópur var í London í vetur og þau eru víst að fara aftur til London og svo er það víst Broadway í New York þannig....ég myndi drífa mig á þetta :)

Helgin var annars fín, ég tók því nú bara rólega á föstudagskvöld, skrapp í sund og tók spólu sem ég steinsofnaði reyndar yfir.
Afmæli hjá Oddnýju í gærkvöldi sem var þrusu gaman og innflutningspartý hjá Valla, íbúðin hans er algjört æði og væri ég sko alveg til í eina slíka :)

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

<< Heim