Týpískt fyrir mig, ég er að fara í 2 próf á morgun og er einhvern vegin varla að nenna að læra meir. Búin að vera frekar stressuð síðustu daga og læra frá því ég vakna og þar til ég fer að sofa, held ég hafi bara lært of mikið síðustu daga og svo í dag þá bara er þreytan farin að segja til sín og áhuginn ekki alveg fyrir hendi.
Búin að vera í klukkutímapásu sem er nú bara lengra en pásur síðustu daga, lagði mig aðeins og er að vona að krafturinn fari aðeins að aukast, stressið fari að hellast yfir mig og þreytan fari. En við sjáum til.
Ég er allavega búin að ákveða það að opna ekki bók eftir prófin á morgun og sofa eins lengi og ég get á laugardaginn til að safna kröftum fyrir næsta próf.

0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Heim