Gærkvöldið var mjög fínt, okkur skötuhjúunum var boðið í grillveislu til Eyrúnar í Langagerðinu þar sem hver og einn kom með sinn grillmat en Eyrún gerði þetta dýrindis salat. Eftir matinn þá skrapp ég í gærusaumaklúbb til Önnu Lilju sem bjó 5 húsum frá Eyrúnu sem var ekkert smá heppilegt þannig ég rölti bara yfir. Þar voru samankomnar allar aðalbadmintongærurnar.
Sara Lee og Oddný eru báðar að fara í dag, Sara til Köben og svo til Króatíu á morgun en Oddný til London og svo til Spánar á morgun. Brjálað ferðalag á dömunum, ég væri nú alveg til í að skreppa með þeim. Góða ferð stelpur!!!

0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Heim