fimmtudagur, mars 25, 2004

Það þýðir víst lítið að minnka skriftir hér :) Annars allt fínt að frétta af mér, allt á fullu í badmintoninu núna þar sem Íslandsmótið er 2.helgi, árshátíð KB banka var síðasta laugardag og var hún að sjálfsögðu rosa skemmtileg. Maturinn mjög góður, fín skemmtiatriði og dúndrandi ball fram á nótt. Meira að segja rútur heim sem keyrðu upp að dyrum, ekki amalegt það.
Næsta helgi er fullplönuð eins og flestar helgar, annað kvöld er það vísindaferð í IMG og svo á laugardaginn eru það við Verzlósaumaklúbbsgellurnar sem ætlum í Bláa Lónið og elda saman og hafa þrusu skemmtilegt kvöld.
Stefnir því ekki í mikla lærdómshelgi en það ætti nú að reddast, líklega síðasta vísindaferðin mín í viðskiptafræðinni þannig ég gat ekki sleppt henni og þar sem mér finnst fyrirtækið líka mjög áhugavert.

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

<< Heim