Helgin byrjaði nú ekki vel hjá mér og má eiginlega segja að föstudagurinn hafa verið frekar mikill óhappadagur hjá mér. Byrjaði á því á einhvern ótrúlegan hátt að týna símanum mínum í skólanum, ég er ekki alveg að skilja þetta en hef allavega ekki ennþá fundið hann. En það er gott að eiga góða að og fékk ég lánaðan síma hjá henni Ingu. Frekar furðulegt þar sem hann er Motorola og kann ég ekkert á hann og get eiginlega bara hringt úr honum og svarað en ég verð vonandi ekki lengi að læra á hann. En ég bið bara til guðs um að síminn minn finnist.
Hitti svo viðskiptafræðigellurnar á föstudagskvöldinu, tók Siggu með mér sem á von á barni ekki á morgun heldur hinn. Við bíðum allar rosa spenntar eftir að litla krílið komi í heiminn. Mér tókst að gleyma gleraugunum mínum hjá Ástu, þetta var ótrúlegur dagur þessi föstudagur.

0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Heim