Helgin var svo sannarlega tileinkuð badmintoni hjá mér og endaði hún á skemmtilegu skralli í gærkvöldi. Fórum öll á Fridays að borða og haldi þið að Árni Johnsen hafi ekki verið með brekkusöng í Vetrargarðinum. Þetta að sjálfsögðu gerði stemninguna alveg gífurlega hjá okkur og var sungið, klappað og staðið upp á stólum og ég veit ekki hvað og hvað. Hann kom svo til okkar og spilaði nokkur lög fyrir okkur. Eftir þetta var haldið í partý til Rögnu (Íslandsmeistarans) þar sem það var sungið, dansað, sumir fóru í heittapottinn, kjaftað og fleira fram á nótt.
Dagurinn í dag fór svo bara í rólegheit, fórum nokkur á American Style í hádeginu og svo var bara farið og teknar 2 DVD myndir og keypt alveg brjálæðislega mikið nammi.
En alvara lífsins tekur svo við á morgun og þá verð ég að fara að byrja að læra eitthvað að viti, þýðir ekki að vera alltaf að skemmta sér :)

0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Heim