Þá er síðasti skóladagurinn búinn, mér finnst það alveg ótrúlegt. Í lok tímans áðan þá tilkynnti kennarinn okkur að við yrðum líklega síðasti árgangurinn sem hann myndi kenna, þetta var enginn annar en sjálfur Stefán Svavarsson sem ég leyfi mér að segja að viti lang mest um reikningsskil og endurskoðun hér á landi. Það verður svo sannarlega mikill missir að missa þennan kennara úr deildinni og trúi ég þessu varla ennþá. En það kemur nú alltaf maður í manns stað.
Annars leggst helgin bara vel í mig, ég á leik kl. 7 í kvöld, kl. 10 í fyrramálið og svo kl. 3 á morgun undanúrslit. Ég hlakka líka bara rosa mikið til að horfa á leikina því þeir verða eflaust mjög góðir margir hverjir. Svo er Sara náttulega á landinu og hitti ég hana í gær, alltaf svo gaman að hafa hana á landinu. Þannig það stefnir í skemmtilega helgi sem mun fara að mestu leyti fram í TBR húsinu við Gnoðarvog og enda svo á skemmtilegu djammi, ekki er það nú verra.

0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Heim