þriðjudagur, mars 30, 2004

Haldi þið að hún Sassa Johns sé ekki að koma til landsins í dag, vá hvað ég hlakka til að hitta dömuna og hanga með henni þessa viku sem hún verður hérna.
Ástæðan fyrir heimkomu Söru er að um helgina er Íslandsmótið í badminton, ég er að sjálfsögðu að fara að spila. Mótaskráin komin og hún lítur bara ágætlega út. Það er alltaf mikil stemning í kringum þetta mót og mikil spenna og eftirvænting. Mótið endar svo á sunnudaginn og vaninn hefur verið að sá sem vinnur Íslandsmeistaratitilinn haldi partý fyrir allt badmintonfólkið á sunnudagskvöld. Þannig ef þú heyrir læti nálægt þér þá veistu að það er badmintonfólk að fagna :)

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

<< Heim