fimmtudagur, apríl 15, 2004

Það er búið að vera tölvumaður heima í kvöld og hann er bara búin að redda öllu, ótrúlegt þegar maður sér hann gera þetta þá er þetta aldrei neitt mál. Ég hef ekki komist á netið í einhverja mánuði á vélinni minni en svo birtist hann bara og reddar þessu. Ég reyndi að fylgjast vel með þannig ég ætti vonandi að geta reddað þessu ef eitthvað klikkar aftur.

Annars lítið að frétta af mér, búin að vera á hlöðunni og hefur gengið bara svona bærilega, er ennþá á áætlun sem telst nú bara ansi gott.
Annað kvöld ætlum við að hittast krakkarnir á 4.árinu og fara út að borða saman, hehe...ekki seinna vænna að koma hópnum saman eða er það kannski too late

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

<< Heim