föstudagur, apríl 09, 2004

Að hugsa sér 2 verkefni sem ég á eftir að skila í þessu námi mínu, þetta fer allt að verða búið. En það versta er að mér gengur svo hægt að vinna þetta, áhuginn ekki alveg nógu mikill því miður. Vona að ég nái nú einhverjum afköstum um helgina annars veit ég ekki hvað, verð náttulega að klára þessi verkefni.

Ég fór með Karen á Sugarbabes í gærkvöldi og voru tónleikarnir bara ágætir. Ég þekkti svona flest lögin, meðalaldurinn var ansi lágr samt en margir í sömu sporum og við sem unnu miða eða fengu ókeypis miða og voru svona að kíkja. Þessar Sugarbabes stelpur voru nú bara ósköp venjulegar unglingsstelpur sem sungu á sviðinu en kunnu voða lítið að dansa.

Ekki enn komið neitt plan fyrir helgina en þar sem ég fór nú í Ríkið í fyrradag þar sem það var hleypt inn í hollum og röðin var nokkrir metrar þá verða nú einhverjir bjórar opnaðir um helgina, ég á ekki von á öðru.

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

<< Heim