þriðjudagur, apríl 13, 2004

Thank god, ég var að ljúka við að prenta út 3. og síðasta verkefnið sem ég á að skila á morgun. Ég man bara varla eftir annarri eins verkefnahrynu, um að gera að enda þetta á stæl þar sem þetta eru a.m.k. síðustu verkefnin sem ég skila í bili skulum við segja (aldrei að vita nema maður haldi bara áfram að læra og prófi eitthvað annað eða framhald). Fyndið en það er sami kennarinn sem er að fá öll þessi verkefni frá mér, enda kannski ekki skrýtið þar sem ég er nú á reikningshaldssviði og öll fögin tengd því og ekki margir kennarar til að velja úr til að kenna þetta. En þá er það bara að byrja á próflestrinum á fullu á morgun, ég held ég fari bara á hlöðuna og reyni að nýta fyrsta daginn í próflestrinum vel. Wish me luck

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

<< Heim