fimmtudagur, apríl 22, 2004

Gleðilegt sumar, vonandi er sumarið komið. Ég er búin að fara í sund 3 morgna í röð í þessari viku og núna get ég varla byrjað að læra nema fara fyrst í sund. En bæði í gær og í dag var alveg frábært veður í lauginni og sérstaklega í dag alveg bongo blíða. Ekki mjög freistandi að fara upp úr lauginni og inni í holuna mína yfir skólabækurnar.

Það er verið að fara að skíra Brynhildi litlu frænku mína í dag og hlakka ég mikið til að vita hvað seinna nafnið verður. Til hamingju með daginn litla prinsessa.

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

<< Heim