Yfirleitt þegar ég læri þá nota ég eyrnartappa, nenni bara ekki að truflast af umhverfina þannig best bara að hafa varann á. Það fyndna við það að nota eyrnartappana er samt að ég gleymi stundum að taka þá úr mér þegar ég hætti að læra. Hef t.d. verið komin út í bíl á leiðinni heim af hlöðunni þegar ég fatta að ég er ennþá með þá og áðan var ég á leiðinni út í búð þegar ég fattaði að ég var með 1 tappa í eyranu. Ætli ég sé ekki líka extra utan við mig þegar ég sit allan daginn og er að lesa, glósa, reikna og reyna að troða öllu markvisst inn í hausinn á mér.
Ég hef reyndar verið dugleg við að hreyfa mig í þessum próflestri og held það skipti miklu máli að fá smá útrás við og við. Fór t.d. í sund í morgun og synti með gamla fólkinu og unglingum sem voru í skólasundi, fer svo á einstaka badmintonæfingar og út að hlaupa.

0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Heim