Mér finnst skemmtileg umræðan á síðunni hennar Bjarkar í dag þar sem hún er að tala um litlu jakkafataklæddu verðbréfastrákana og svo verkfræðingana í flíspeysum og gallabuxum.
Allir viðskiptafræðingar hafa lært eitthvað um þetta og myndi ég segja að það er ákveðin menning sem myndast í fyrirtækinu sem er ekkert tengt því hvort þú sért verkfræðingur, lögfræðingur, viðskiptafræðingur eða sálfræðingur. Menningin í fjármálafyrirtækjunum í þessum Vestræna heimi sem við lifum í er svona að allir eru snyrtilega til fara og það er kannski ekkert skrýtið.
Ég efast um að fólk myndi láta spariféð sitt til verðbréfamiðlara sem væru með skrifstofu í bílskúrnum heima hjá sér þar sem allt væri í drasli og fullt af pizzakössum og bjórdósum út um allt þú myndir einfaldlega ekki treysta þeim.
Þannig er það ekki málið, tilgangurinn að vera snyrtilegur til fara er að reyna að sýnast trúverðugur svo fólk treysti þér?? Eða það er mín ályktun.
En það er gaman að velta þessu fyrir sér, hvernig ætli það væri t.d. ef einhver íslenskur banki stofnaði útibú í einhverju múslimaríki t.d. Íran? Þar sem trúarbrögð eru alveg gjörólík, klæðnaður, hefðir og bara allt. Ætli það myndi ganga? Það yrði allavega mjög erfitt

0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Heim