þriðjudagur, maí 04, 2004

Ég er enn á lífi og er að læra fyrir næsta próf sem er á föstudaginn í Endurskoðun 2. Ég hef nú ekkert verið eitthvað brjálað dugleg en vona að næstu dagar verði góðir :)
Mér gekk annars bara ágætlega í báðum prófunum á föstudaginn, var samt alveg dead síðasta klukkutímann og held ég geri þetta aldrei aftur, allavega ekki í bráð.
Fór svo í saumaklúbb til Maríu um kvöldið og sá nýju íbúðina sem var alveg rosa flott. Varð svo aðeins að kíkja í bjór og hitti Árbæjarstelpurnar á Vegamótum Unni, Björk og Sæunni

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

<< Heim