miðvikudagur, júní 30, 2004

Jæja styttist í helgina og í Fimmvörðuhálsinn, þessi ferð okkar er orðin rosa vinsæl því það er að myndast biðlisti, erum orðin 39 manns þannig ég er orðin rosa spennt.
Annars er líka allt að gerast heima því við Þröstur erum búin að vera að breyta heima, mála og erum að reyna að koma okkur almennilega fyrir. Ég er búin að opna heimasímann aftur þannig þið getið hringt aftur niður til mín :) og ég hringdi í Fréttablaðið til að fá það líka. Þannig við getum sagt að það styttist í að þetta verði orðið ansi heimilislegt hjá okkur skötuhjúunum.

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

<< Heim