laugardagur, júní 19, 2004

Sumarið líður svo hratt, júní að verða búinn, þetta sumar verður búið áður en maður veit af sérstaklega þar sem ég er að reyna að læra og skrifa lokaritgerðina mína í sumar þá býður sumarið ekki upp á mikla skemmtun hjá mér.
Við stelpurnar í saumaklúbbnum Hall hittumst í gærkvöldi heima hjá Svanhvíti, 3 af hópnum að útskrifast í dag og vil ég óska þeim til hamingju með viðskiptafræðititilinn og eigi þið góðan dag :)
Við erum 11 í saumaklúbbnum, allar í viðskiptafræði í HÍ og 1 orðin viðskiptafræðingur og 3 að útskrifast í dag.

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

<< Heim