laugardagur, júlí 24, 2004

jæja ég má til með að skrifa nokkrar línur. Ég skil ekki alveg hvað er að gerast hérna á landinu því veðrið er farið að vera alltaf svo gott. Síðasta sunnudag ákvað ég að taka mér bara alveg frí frá lærdómnum því veðrið var svo geggjað. Ég fór í Bláa Lónið með Þresti, Oddnýju o.fl. og var það án gríns eins og að vera á Spáni, fullt af útlendingum og bongóblíða. Um kvöldið fórum við Þröstur út að borða og svo á Hárið. Mér fannst Hárið mjög skemmtileg og hefði sko alls ekki vilja missa af því þannig þið sem eigið eftir að sjá það hurry up :) ekki missa af þessu.

Eftir vinnu á fimmtudaginn þá fórum við saman í vinnunni út að borða og enduðum á smá tjútti, hehe....það var þvílíkt stuð á okkur og enn og aftur rosa fínt veður þannig við gátum setið úti.

Í gærkvöldi var svo saumó hjá viðskiptafræðigellunum heima hjá Önnu Lilju, það sem toppaði kvöldið var að Heiður vinkona okkar mætti surprise frá Spáni. Það var ekkert smá gaman að sjá hana og extra gaman svona surprise þegar við bjuggumst engan vegin við því að hitta hana. Margt skemmtilegt hefur gerst hjá henni síðustu mánuði og var gaman að heyra sögur frá Spáni. Ingunn hringdi líka frá Þýskalandi þannig hún var svona hálfpartinn með okkur :)

Eftir þetta fór ég í badmintonpartý til Viggu og var það rosa stuð líka, mjög góð mæting og mættu næstum bara allir.
Ég sleppti bænum í gærkvöldi og var bílandi og er mætt upp í vinnu til að fara að læra. Þó svo að veðrið sé svona gott þá er stefnan tekin á lærdóm í allan dag og á morgun (ég læt eins og ég sjái ekki sólina úti, ímynda mér rok og rigninu)

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

<< Heim