Þessa dagana er ég á fullu að vinna í ritgerðinni og stefni ég á að klára hana bara sem fyrst. Dálítið skrýtið að vera á bókhlöðunni að læra en að vera samt ekki á leiðinni í skóla í haust en það er ágætis tilhugsun. Ég er farin að hlakka til að byrja að vinna og mig langar mest að drífa í að klára þessa ritgerð.
Það hefur alveg talsvert breyst á heimili okkar skötuhjúanna í sumar og erum við enn í breytingarham þannig það verður nóg að gera í heimboðum, saumaklúbbum, matarboðum o.fl. á næstunni og bara aldrei að vita nema þér verði bara boðið í mat :)
Stefnan er tekin á að halda saumaklúbb á föstudagskvöld og þar sem okkur vinkonunum finnst mjög svo gaman að hittast og fá okkur tja..nokkra bjóra eða hvítvín þá var tilvalið að halda þetta á föstudegi en ekki á virku kvöldi :)

0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Heim