Margt búið að gerast síðustu 1 og hálfa vikuna, ég er orðin viðskiptafræðingur og búin að skreppa aðeins til Köben. Útskriftardagurinn var alveg frábær og ég set inn fleiri myndir af honum fljótlega. Það var rosalega gaman í Köben um helgina, ég verslaði aðeins, mamma hans Þrastar hélt upp á stórafmæli þar á laugardaginn og var sá dagur alveg ógleymanlegur, ég hitti Röggu aðeins í gær í verslunarleiðangri. Verst var samt að geta ekki hitt Björk en hún var í London akkúrat um helgina. Núna er það svo bara hið daglega líf sem tekur við og það styttist óðum í jólin :)

3 Ummæli:
Gaman að sjá myndir úr útskriftinni! Þetta hefur verið rosa flott veisla:)
Takk fyrir síðast :) Var að skoða myndirnar úr veislunni, sá að það voru komnar fleiri. Þetta hefur verið rosa gaman.
Æ gleymdi að setja nafnið mitt undir.
Kv. Ragga
Skrifa ummæli
<< Heim