Svo sannarlega komið að lokasprettinum í ritgerðasmíðunum. Skil á fimmtudaginn en markmiðið mitt er að reyna að klára þetta á miðvikudaginn, bara ef eitthvað klikkar þá gæti ég notað nóttina og fimmtudaginn. En vonandi gengur bara allt vel, ég er á fullu að lesa yfir og laga og bæta, klára þá kafla sem ég var ekki alveg búin með.
Þið getið ekki ímyndað ykkur hvað ég hlakka til að skila þessu af mér, mér líður hálfpartinn eins og ég sé í búri og þegar ég skila þá mun ég sleppa út úr þessu búri. Það verður eflaust ljúf tilfinning sem fer um mig þegar ég geng út af skrifstofunni í Odda eftir að hafa skilað þeim eintaki af þessari ritgerð en tilhugsunin verður eflaust skrýtin þar sem Háskólagöngu minni er að ljúka a.m.k. í bili, maður getur ekki annað en hugsað hvað tíminn líður hratt.

0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Heim