Hverjum datt eiginlega í hug að hafa einhverja fyrirfram ákveðna forsíðu á þessum lokaritgerðum. Maður fær semsagt forsíðuna á skrifstofunni og þarf svo að láta hana passa akkúrat í gat sem búið er að skera út, það er bara verið að láta mann eyða tíma í eitthvað pússl. En ég held mér hafi nú tekist þetta a.m.k. á mínum prentara en týpískt svo að þetta verði eitthvað öðruvísi þegar ég fer og læt prenta þetta út.
Ég var að hugsa um að taka mynd af lærdómsaðstöðunni minni hérna heima, það er eiginlega gjörsamlega allt í rúst. Skrifborðið fullt af bókum, blöðum, tímaritum, greinum, möppum, glösum með botnfylli af kóki, Magic dósir, tóm nammibréf og alls konar drasl. Það eru bækur og möppur allt í kringum mig á gólfinu, 2 prentarar, 2 tölvur, 2 lampar og margt margt fleira.
Annars miðar ritgerðavinnunni vel, ég á eftir að klára lokaorðin og gera einhverja samantekt sem verður eflaust svipuð og lokaorðin. Blaðsíðufjöldinn er 29 bls sem ég held að sé nokkuð gott (talað um 25-30 bls) og svo er ég bara að lesa yfir og enn að bæta einhverju við. Planið er enn að skila þessu á morgun og vona ég svo innilega að ég standi við það. Ég nenni þessu hreinlega ekki meir.

3 Ummæli:
Jibbbbbí, það tókst að koma commentinu inn!!!!
Flott nýja útlitið á síðunni:)
Vá bara komið nýtt útlit...og kommentakerfi....ég hélt ég hefði farið inn á vitlausa síðu!!
Ertu búin að skila ritgerðinni??
Kv. Ragga
Skrifa ummæli
<< Heim