Ég var að keppa á mínu fyrsta badmintonmóti vetrarins í dag og var mitt lið í 2.sæti en vá hvað badmintoníþróttin getur verið erfið hehe...eða ég í lélegu formi. Ég er allavega alveg búin núna en það er ljúf tilfinning. Í kvöld er það svo fjölskyldumatarboð, spurning hvort það endi með einhverju skralli, aldrei að vita.

4 Ummæli:
Hæ sæta! Það fer bara að styttast í útskriftina;) Verður partý?
Jæja, stóri dagurinn á morgunn:) Hlakka til að fá lýsingar á hinu svaðalega partýhaldi sem verður á morgunn;)
rosalega leiðinlegt kommentakerfi!!!
Allavega ég er að biða eftir myndum úr partýi... koma svoooo!!!
kv. Björk
Myndirnar koma fljótlega inn, málið er bara að Þröstur tók tölvuna með sér til Svíþjóðar og hann kemur ekki aftur fyrr en á miðvikudagskvöld þannig ég á ekki von á að myndirnar komi inn fyrr en hann kemur en we´ll see.
Skrifa ummæli
<< Heim