laugardagur, nóvember 20, 2004

Spurning hvort ég ætti að skella mer í auglýsingabransann bara, ég var í auglýsingu fyrir Moggann síðasta sunnudag. Ég vissi ekki að þessi mynd hafði verið tekin en hún var tekin þegar ég var að keppa í badminton á föstudaginn fyrir viku síðan.
Starfsdagur bankans var siðasta laugardag og voru fyrirlestrar allan daginn og svo matur og diskó um kvöldið.

Ég var með saumó í vikunni og svo matarboð í kvöld þannig spurning um að fara bara að taka aðeins til og elda fyrir kvöldið.

Ég fór í fyrsta skipti í world class í spönginni í dag og það var rosa fínt bara, held ég eigi alveg eftir að fara aftur þangað. Manni líður alltaf svo vel þegar maður er búinn að hreyfa sig.

1 Ummæli:

Blogger Regína sagði...

úúú! Bara orðin fræg:) Get ég einhvers staðar nálgast myndina... Mig langar að sjá hana.

1:49 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Heim