Það er nú orðið ansi langt síðan ég hef skrifað á þessa síðu, það eru bara svo margir sem búa í útlöndum eða bara úti á landi að ég er að hugsa um að skrifa nú kannski eitthvað hérna bara svo fólk viti nú eitthvað hvað er að gerast.
Mér finnst nýbúið að vera helgi en þá er bara aftur komin helgi, síðasti laugardagur var rosa skemmtilegur. Ingibjörg og Gunnar giftu sig. Athöfnin var í Dómkirkjunni og veislan haldin í Ýmiss salnum í Öskjuhlíð. Þetta var glæsilegt brúðkaup og rosalega gaman, maturinn alveg eins og hann gerist bestur, skemmtilegar ræður og svo endaði þetta allt með allsherjardansleik þar sem farið var í hringdans og allir dansa kónga. Eftir þessa frábæru athöfn og veislu þá lág leiðin á 5 ára reunion hjá Versló. Ég kom nú frekar seint þangað en það var samt gaman að hitta alla og var mikið fjör þar.
Vikan hefur líðið og komin er aftur helgi, ég er nú að hugsa um að taka því bara rólega í kvöld enda ömurlegt veður úti rok og rigning þannig mig langar helst til að leggjast bara upp í sófa með einhverja skemmtilega videospólu.
Á morgun er það svo árshátíð hjá saumaklúbbsskvísunum, bekkjarsystrum úr Versló. Ég og Katrín erum búnar að plana frábæran dag sem á að vera óvissuferð þannig ég get ekki sagt planið fyrr en eftir árshátíðina :)
Oddný er líka komin til byggða og að sjálfsögðu verð ég að hitta hana.

0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Heim