mánudagur, september 12, 2005

Árshátíð saumaklúbbsins heppnaðist rosalega vel á laugardaginn. Byrjuðum á því að fara í keilu í Öskjuhlíð þar sem Hrund rústaði okkur en ég var í 2.sæti jibbý. Eftir það fórum við í Laugar Spa og lágum í pottinum, gufunum o.fl. og það var rosalega notalegt, settumst á veitingastaðinn og fengum okkur að drekka og enduðum svo í smá slökun í Lazy boy stólunum við arineldinn. Svo var það bara sturta og við tókum okkur til fyrir kvöldið, við vorum rosalega fínar í kjólum eða pilsi í okkar fínasta pússi. Borðuðum á Apótekinu um kvöldið og fengum mjög góðan mat, fórum svo heim til mín þar sem við héldum áfram. Komum við í einu partýi á leiðinni niður í bæ en fórum svo á Óliver. Mér fannst reyndar ekkert geðveikt á Óliver, troðfullt af fólki og ekkert svo margir sem ég þekkti, fór líka á Vegamót, Ara í Ögri og Sólon. Hitti Unni Eir og við fórum á Ara og þar var rosa gaman.
Maður var nú ansi þreyttur í gær svona action.

Svo var það kvöldmatur og pottur í Kúrlandinu í gærkvöldi þannig fínn endir á helginni.

3 Ummæli:

Blogger Regína sagði...

Jíha! Gaman að þú sért byrjuð að blogga aftur. Nú get ég fylgst með hvað þú ert að gera:) Kiss og knús!

1:51 e.h.  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Mín bara byrjuð að blogga aftur! Ánægð með þig :) Við verðum svo endilega að hittast þegar ég kem til landsins, kem 22. sept og verð í 2 vikur.

5:49 e.h.  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Gaman gaman!! Frábært að þú sért byrjuð að blogga aftur :) ...hefði nú alveg verið til í að hitta ykkur á Ara...

2:00 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Heim