laugardagur, september 17, 2005

Gærdagurinn var alveg frábær vægast sagt og ég get ekki annað en deilt honum með ykkur. Við byrjuðum á því að fara á Fjórhjól upp í Skorradal, fengum kraftgalla og hjálm og þeystum um sveitina ofan í Skorradalsvatn, ofan í á, í drullupollum og aldrei þessu vant þá var nauðsynlegt að hafa rigningu það bara gerði þetta ennþá skemmtilegra. Klifruðum upp klifurvegg þarna og átti ég nú ekki í erfiðleikum með það (allt Björk að þakka að ég kunni að klifra:)svo voru samlokur og bjór og haldið aftur í bæinn. Hittumst öll á La Primavera þar sem var fordrykkur og alveg frábær matur. Eftir það var dúndurball með Sálinni á Nasa. Ég held að allir hafi skemmt sér rosalega vel bæði um daginn og um kvöldið og ég mæli svo sannarlega með að prófa að fara á fjórhjól, alveg þess virði.

Í morgun vaknaði mín svo bara fersk rúmlega 8 og skellti sér í skólann sem var frá 9-13, pælið í því. Mér finnst eiginlega ótrúlegt að ég hafi getað það vegna gífurlegrar þynnkureynslu síðust ár. Ég er ekkert smá ánægð með sjálfan mig, engin þynnka og ekki neitt (persónulegur sigur fyrir mig heheh..)Spurning um að fara bara aftur á djammið í kvöld og tékka hvort ég verði svona hress á morgun líka heheh...We´ll see

2 Ummæli:

Anonymous Nafnlaus sagði...

úúú, hljómar vel :) Hvenær ætli maður komist næst á sálarball ???

4:22 e.h.  
Blogger Björk sagði...

Nohh... hljomar skemmtilega

10:46 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Heim