Þeir Árbæingar sem skoða þessa síðu ættu að kannast við hið fræga Rósaball sem haldið er í Árbæjarskóla á hverju hausti það var semsagt í gærkvöldi. Þetta er fyrsta skólaballið á haustin og er það þannig að nemendur úr 10.bekk koma með rós heim til nemenda í 8.bekk og fara með þeim á ballið þ.e. strákur í 10. bekk sækir stelpu í 8. og svo öfugt. Það var stelpa úr Ártúnsholtinu sem sótti bróður minn (sem var að byrja í 8.bekk notabene) en bróðir minn er frekar óheppinn því mamma er kennari í hverfinu og þekkti hún því stelpuna sem sótti hann heheh... Einhvern vegin þá tekur maður alltaf eftir því þegar þetta ball er haldið því sumir sækja á Limmósíum eða maður sér krakkana labba á ballið þannig svona viss stemning í öllu hverfinu í kringum þetta ball.
Ég veit ekki í hvað mörg ár þetta ball hefur verið en þetta er allavega áralöng hefð sem mér finnst rosalega sniðug og skemmtileg.
Ég veit ekki í hvað mörg ár þetta ball hefur verið en þetta er allavega áralöng hefð sem mér finnst rosalega sniðug og skemmtileg.

2 Ummæli:
haha... vá ég man alveg eftir þessu balli hjá mér. Ég átti engin kúl föt svo mamma fór með mér í bæinn og ég fékk nýtt dress og fyrstu háhæluðu skóna. Svo kom einhver bældur 10. bekkjar lúði með rós og við löbbuðum á ballið.
*svitn*
bróðir þinn í 8. bekk og minn í 7.
djöfull eru þeir fljótir að stækka!
Skrifa ummæli
<< Heim