Ég er búin að ákveða að taka mér frí frá badmintoninu þessa önnina og er svona að reyna að koma mér af stað í Laugum. Ég hef aðallega verið að fara í þessa brennslukickboxtíma sem eru mjög góðir en spurning hvort sé ekki best að ákveða bara einhverja tíma svo maður mæti.
Annars á amma afmæli á morgun og ætla ég að kíkja til hennar eftir vinnu, úfff..ekki veit ég hvað ég á að gefa henni. Hún er 72 ára, vá hvað tíminn líður hratt mér finnst hún samt bara líta út fyrir að vera svona 60 ára og varla það. Ef þið eruð með hugmynd að afmælisgjöf megið þið endilega koma með uppástungu svo ég endi ekki bara á blómvendi.
Svo er viðskiptafræðisaumó annað kvöld hjá Svanhvíti þannig það verður fínt að hitta allar viðskiptafræðiskvísurnar. Yfirleitt höldum við saumó um helgar og höfum djammsaumó en ekki á morgun, spurning hvort þessi verði eins fjörugur og allir hinir þar sem áfengi er við hönd :)

3 Ummæli:
Er thad amma unnur eda amma inga. Mættir nu sidan alveg koma thessari myndasidu aftur i loftid. Til hvers ad eiga digitavel?
Amma Unnur á afmæli, já ég þyrfti að koma upp myndasíðunni aftur. Ég gleymdi passwordinu mínu þarna á fotki og þegar ég ætlaði að fá nýtt þá var það sent á hi mailið mitt sem búið var að loka. Veist þú um einhverja góða myndasíðu?
Klukk!!
Skrifa ummæli
<< Heim