mánudagur, september 26, 2005

Þá er helginni lokið og var hún bara nokkuð fín en frekar róleg. Á föstudaginn var kynning eftir vinnu niðri í banka þar sem voru léttar veitingar í boði og það er ekkert smá notalegt að enda vikuna á svona eins og einum bjór eða einu hvítvínsglasi. Ég fór svo með Söru og Evu á Óliver á föstudagskvöldið, mættum bara um 10 og fórum heim 3. Rosa fínt að sitja bara og spjalla og svo fyllist staðurinn af fólki sem er að koma á djammið og maður þekkti fullt af fólki þannig mjög fínt kvöld með lítilli drykkju og engri þynnku daginn eftir. Ég, Karen og Árni Freyr tókum svo bara video á laugardagskvöldinu þar sem bræðurnir þ.e. Þröstur og Ingvi voru báðir úti á skrallinu.

2 Ummæli:

Anonymous Nafnlaus sagði...

Hey Unnylla.
Nú er ég orðin frekar útlensk...og neyðist því til að spyrja...hvaða staður er Óliver?
knus
Aðalheiður

7:26 e.h.  
Blogger Unnur Ylfa sagði...

Þið hafið greinilega ekki komið heim síðan í júní :) Óliver er eiginlega aðalskemmtistaðurinn í dag. Hann er þar sem Kaffi List var á Laugaveginum. Yfirleitt rosalega margir þar og þessi rosalega röð sem var alltaf á Hverfisbarnum hefur færst þangað og er eiginlega enn verri.

4:26 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Heim