Hvað er eiginlega málið með veðrið hérna í Reykjavík? Allt hvítt og bara október ég skil þetta ekki alveg. Ég hef yfirleitt ekkert verið að stressa mig á því að setja vetrardekkin undir bílinn og gerði það svona yfirleitt í janúar undanfarin ár en núna kemst ég bara ekki út úr húsi því það er allt í snjó og ég byrjaði að spóla neðst í brekkunni áðan þannig ég þurfti bara að gjöra svo vel að snúa við og vera heima.
Það er búið að vera ansi kalt í september og október þannig ég spái frekar hörðum vetri allavega miðað við þessa byrjun. Ótrúlegt.
En að einhverju skemmtilegra, mig langar að óska Unni Eir til hamingju með að hafa komist inn í skólann í London alveg frábært hjá henni. Ég held ég verði að fara að fylgjast með tilboðum til London því ég verð að fara að heimsækja hana á næsta ári. Ég held það sé líka alveg tími til kominn að fara að kynnast London aðeins meira, ég hef bara verið þar í stuttum stoppum en hef verið dugleg að fara til Köben undanfarin ár. Ég var t.d. í London í ca 1 klukkustund í síðustu viku heheh...dæmi um hve stutt stoppin eru hjá mér.
Sara og vinkona hennar eru annars með afmæli í kvöld þannig stefnir í rosa stuð í kvöld.

5 Ummæli:
Ohh ég væri sko alveg til í smá snjó! Ég er samt ekkert að kvarta undan 11-12 stiga hita ;) Góða skemmtun í kvöld!
Já maður saknar svolítið snjósins. En ég sætti mig alveg við að fá hann bara um jólin þegar ég kem til Íslands:) Frábært hjá Unni Eir að komast inn í skólann.
Unnur Eir er náttúrulega snillingur, það var ekki við öðru að búast en að þeir myndu slást um hana! Hún hefur þetta frá okkur hinum í saumó :)
Vá hvað ég sakna þess ekki neitt að hafa ekki snjó! Var einmitt að horfa á íslensku fréttirnar í gær eða fyrradag þar sem var verið að sýna snjóinn og ég fékk bara hroll og hugsaði um það hversu heppin ég væri að vera hér í hlýjunni :)
já mér var einmitt hugsað til þín Sæunn hvort þú saknaði eitthvað snjósins, mér finnst hann rosalega jólalegur þannig það væri fínt að fá hann á Þorláksmessu og vera fram yfir áramótin en svo væri ég alveg til í að sleppa honum.
Skrifa ummæli
<< Heim