Ég skrapp aðeins til Amsterdam í síðustu viku og lofaði sú borg góðu. Falleg hús og umhverfi en kannski Rauða hverfið sem var frekar skrýtið. Ótrúlegt að sjá bara ungar ljóshærðar stelpur standa í gluggunum hálf naktar að bíða eftir viðskiptavinum. Á nokkrum börum voru barstelpurnar að afgreiða á bikiníi og dönsuðu svo stundum aðeins uppi á barborðinu og á þessum eina bar sem ég fór inn á voru eiginlega bara einhverjir ógeðslegir karlar þar inni þannig við forðuðum okkur bara annað.

0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Heim