þriðjudagur, október 04, 2005

Oddný Akureyringur var hérna í bænum um helgina og við hittumst á laugardaginn til að spjalla. Hún kemur fljótlega aftur til Reykjavíkur stúlkan sem betur fer.

Annars verð ég að segja ykkur að ég er byrjuð að prjóna mér lopapeysu. Fyrst ég er búin að segja það hér þá er komin pressa um að ég klári hana. Ég hef samt mikla trú á mér ég sat fyrir framan sjónvarpið í gær og prjónaði og prjónaði. Mér varð nú eiginlega bara strax illt í puttunum það er greinilegt að þessar puttahreyfingar hafa ekki verið gerðar í MÖRG ár. Ég er svona að spá hvenær ég eigi að setja mér markmið um að vera búin með peysuna held ég segi bara fyrir jól.

5 Ummæli:

Anonymous Nafnlaus sagði...

:)
Vá hvað þú ert dugleg að prjóna stelpa. Hélt að amma þín væri að prjóna hana fyrir þig!
Ég skal mæla peysuna mína í dag, kom svo seint heim í gær að ég gleymdi því... sorry
Oddný

8:47 f.h.  
Blogger Unnur Ylfa sagði...

Neinei amma er ekki að prjóna hana fyrir mig en hún byrjaði og nú er ég að halda áfram með búkinn upp að höndum en svo þarf ég hjálp þegar munstrið byrjar heheh...þannig hún er kennarinn og ég er nemandinn að læra þetta.

9:57 f.h.  
Blogger Björk sagði...

Eg hafi lika mikla tru a mer thegar eg byrjadi a pinkulitilli smabarnapeysu i sumar. Er bara buin med bakid. En allavega gangi ther vel.

12:50 e.h.  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Ég hef trú á þér og ömmu þinni! Þú verður pottþétt búin fyrir jól :)

7:37 e.h.  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Koma svo, taktu þig á í blogginu stelpa!

6:01 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Heim