Það er alveg ótrúlegt hvað helgarnar líða hratt. Ég hitti nú alveg fullt af fólki þessa helgina. Á föstudagskvöldinu fór ég út að borða á Apótekinu með vinnufélögunum og var það rosalega huggulegt. Maturinn alveg frábær og við sátum,drukkum, borðuðum og spjölluðum fram eftir kvöldi og vorum í svona litlu herbergi þannig gátum verið alveg út af fyrir okkur.
Á laugardaginn hitti ég nokkrar stelpur sem ég vann með í Reykjadal á mínum yngri árum :) Við vorum 7 stelpur og það voru 3 börn sem öll eru fædd á þessu ári. Það lítur út fyrir að ég sé að komast á þennan tískubarnseignaraldur eða hvað.
Í gærkvöldi fórum við í leikhús með Unni og Kidda á Woyzeck sem Vesturport er að setja upp. Eftir að hafa séð Rómeo og Júlíu tvisvar þá var ég með miklar væntingar en vá þetta var eiginlega bara frekar skrýtið leikrit og ég get bara því miður ekki mælt með því en söngurinn var fínn og þetta voru góðir leikarar en bara sagan var mjög skrýtin vægast sagt.
Ég var að koma úr heimsókn frá Emil og Eddu sem voru með mér í viðskiptafræðinni við Ragga og Jón kíktum til þeirra að sjá litla erfingjann þeirra og hann var alveg nákvæmlega eins og Emil og alveg rosalega sætur
Jæja þá er skýrsla helgarinnar komin. Næstu helgi er það svo árshátíð hjá vinnunni hans Þrastar sem ég hlakka gríðar mikið til því uppáhaldshljómsveitin mín er að spila og reynið nú að giska hverjir það eru? Þá verður sko dansað fram á rauð nótt ef ég þekki mig rétt.

4 Ummæli:
Ég ætla að giska á Sálina?? Gæti nokkuð verið að það sé rétt hjá mér??????
Hvað er málið með þig og Sálarböll?? Alltaf eru þeir að spila þar sem þú ert, kannski koma þeir bara til Californiu og spila fyrir mig.... yeah right!
bíddu, ertu ekki að gleyma einhverjum sem þú hittir... he he he :) sjáumst svo í næstu viku..
Já Sálin eltir mig bara heheh...Jú elsku Oddný mín ég bara steingleymdi að segja að ég hafi hitt þig. Ég mundi það um leið og ég smellti á enter til að birta færsluna. I´m so sorry ég skal bæta úr þessu :)
Skrifa ummæli
<< Heim