mánudagur, október 17, 2005

Dem ég var búin að skrifa færslu inn í gær sem bara kom ekki inn en allavega ég ætla að reyna aftur.

Helgin var bara mjög fín hjá mér. Hitti viðskiptafræðistelpurnar á föstudagskvöldinu heima hjá Ástu og var það mjög gaman en frekar rólegt svona allavega á okkar mælikvarða heheh...yfirleitt mjög mikið stuð og skrautlegt hjá okkur og endar yfirleitt í hörku djammi langt fram á nótt.

Á laugardaginn þá fóru ég, Unnur Eir og Björk á Vegamót að borða og kíktum svo yfir á Óliver. Rosa gaman að hitta Björk og heyra fréttir frá Köben. Mjög fínt að skreppa svona út og fá sér gott að borða og sötra smá bjór.´

Í gærkvöldi var það Eldsmiðjupizza heima hjá Ingibjörgu og Gunnari hinum nýgiftu hjónum. Var spjallað um brúðkaupsferðina þeirra og fengum við stelpurnar að sjá brúðargjafirnar. Fínn endir á góðri helgi.

Nú er stefnan tekin á vinnu og lærdóm í þessari viku.

2 Ummæli:

Blogger Inga sagði...

Loksins kom nýtt blogg :)

7:38 e.h.  
Blogger Regína sagði...

Grrrr, eldsmiðjupítsa (slef)

6:08 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Heim