Ég má til með að deila með ykkur áhyggjum mínum yfir sjálfri mér. Ég er í verðbréfamiðlaranámi sem enda með 3 prófum 7., 10. og 14. nóvember. Ég er búin að vera í þessu síðan í september. Planið hjá mér um helgina var að læra gjörsamlega alla helgina, núna er klukkan að verða 3 á sunnudegi og ég er án gríns ekki enn byrjuð að læra. Ég skil ekki alveg hvað er að mér því ég finn mér alltaf eitthvað annað að gera t.d. hanga á netinu og bara allt annað en að læra. Ég held samt að vandamálið hjá mér er það að ég veit ekki á hverju ég á að byrja. Ég nenni ekki að byrja á byrjuninni því sá hluti var svo leiðinlegur þannig ég held ég byrji á einhverju skemmtilegu inni í miðju allavega til að koma mér í gang. Ég gæti alveg trúað að mjög margir hafi átt við þetta sama vandamál að stríða einhvern tíman allavega heheh..
Annars var rosalega gaman í afmælinu í gær hjá Söru og Evu Rós. Fórum á Nasa eftir afmælið og þar vantaði svo sannarlega ekki fólkið.
Annars var rosalega gaman í afmælinu í gær hjá Söru og Evu Rós. Fórum á Nasa eftir afmælið og þar vantaði svo sannarlega ekki fólkið.

3 Ummæli:
Maður getur alltaf séð á blogginu þegar fólk á að vera duglegt að læra og er það ekki, því þá er það duglegt að blogga! En annars skil ég þig mjöööög vel. Alveg óþolandi þegar maður gerir þetta, svo er maður alveg með í maganum af samviskubiti seinni part sunnudagsins en finnst það samt ekki taka því að byrja ;) En gangi þér vel, þú hefur nú aldrei verið þekkt fyrir það að standa þig ekki á prófum!
Ég skil svo vel þetta vandamál þitt, ég á við nákvæmlega sama vandann að stríða! Þá er bara málið að fara út í göngutúr og næla sér í smá súrefni og roða í kinnar .. þá er maður miklu betur stemmdur til að læra!
Hæ hæ Unnur!
Ég rakst á bloggið þitt þegar ég var að skoða síðuna hennar Erlu Kristínar.Ég mátti til með að kasta á þig kveðju,það er svo ógurlega langt síðan að ég hef séð þig.Annars er allt gott að frétta af mér.Begga systir sagði mér að hún hafi hitt þig í partýi í sumar,og sagði þér af litla krílinu mínu sem á að koma í heiminn 15 des.
Kærar kveðjur,Sunna
Skrifa ummæli
<< Heim