laugardagur, nóvember 05, 2005

Ég er að læra undir próf og ég hef ekki farið í próf í rúmlega 1 ár en hér sit ég við skrifborðið að lesa lögfræði. Ég hef aðeins verið að velta því fyrir mér hvort ég sé ekki í lagi því mér finnst þetta bara alls ekki leiðinlegt. Ég veit ekki hvort það er því það er svo "langt" síðan ég var í skóla eða því ég hef lært flest af þessu áður og er svona frekar að rifja upp don´t know. Allavega Réttarheimildir, Alþingi, Stjórnarskráin, Dómstólar, þrískipting valdsins og allt þetta á hug minn allan fram á mánudag.

Annars held ég að fasteignaverðið sé að fara að lækka mjög fljótlega jafnvel á næstu vikum bara en jafnframt eru vextir líklega að fara að hækka. Þannig ætli niðurstaðan sé ekki sú að það skiptir svosem ekki miklu máli hvenær maður kaupir sér íbúð, annað hvort er verðið hátt og lágir vextir eða verðið lægra og hærri vextir.

Jæja ég ætla að halda áfram í pælingum um Alþingi, Stjórnarskrána og co

Bis spater

4 Ummæli:

Anonymous Nafnlaus sagði...

Já gangi þér bara vel í prófinu skvísa!!! Kveðja Petrína

2:28 f.h.  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Gangi þér vel :)

1:54 e.h.  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Spurning um að þú takir bara lögfræðina líka fyrst þetta er svo gaman ;)

6:37 e.h.  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Gangi þér vel að læra pæja:) Þú massar þetta.. Kveðja Oddný

12:35 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Heim