laugardagur, nóvember 12, 2005

Ég vorkenni sjálfri mér alveg svolítið núna. Ég er semsagt að fara í síðasta prófið á mánudaginn og er því búin að vera að reyna að læra í dag En í staðin er ég að fórna starfsdegi í vinnunni og Iceland International badmintonmótinu. Á báðum stöðum er svo alveg hörkudjamm í kvöld en ég vorkenni mér eitthvað svo mikið og held ég haldi því bara áfram að vera í fýlu heima að "reyna" að læra. En ef ég reyni að líta á björtu hliðarnar þá kemur annar starfsdagur á næsta ári og annað mót á næsta ári og þá verð ég vonandi bara ekki í prófum :)

Annars er síðasta prófið á mánudaginn og ég get varla beðið eftir því að það klárist og þá verð ég "bara" að vinna og í sambandi við umheiminn aftur hehe...
Þröstur er að fara til Parísar á morgun ohhh...ég vildi að ég fengi að fara með en það er víst ekki hægt í þetta sinn.

2 Ummæli:

Blogger Inga sagði...

Hvað er hann að fara að gera í París?? Ég skal alveg fara með honum fyrir þig :)

9:28 e.h.  
Blogger Unnur Ylfa sagði...

Hann er að fara með vinnunni.

9:54 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Heim