sunnudagur, desember 11, 2005

Vá ég trúi því varla ennþá að Unnur Birna hafi unnið keppnina í gær. Ég horfði á hana en byrjaði aðeins of seint og vissi að hún hefði komist í 15 manna úrslitin. Þetta var ekkert smá spennandi og sérstaklega þegar verið var að tilkynna 6 manna úrslitin og svo fyrstu 3 sætin. Ég hélt að sjálfsögðu með Unnir Birnu, Mexíco og Tansaníu.
Ætli nafnið mitt verði ekki aðeins alþjóðlegra eftir þetta hehe..

Annars er allt gott að frétta af mér, það styttist óðum í jólin og það er spurning um að fara að koma sér aðeins í smá jólaskap. Ég er ekki byrjuð að skreyta neitt hmm..sem er ekki nógu gott. En ég er aðeins byrjuð á jólagjöfunum.
Ég var á jólahlaðborði á föstudaginn á Lækjarbrekku og það var mjög gaman, kíktum svo aðeins á Óliver en það var ekkert geðveikt þar ekki eins og síðustu helgi þar sem maður þekkti miklu fleiri.

Mér líður svona hálfpartinn eins og ég sé að læra því ég er að lesa yfir Mastersritgerðina hennar Röggu. Ég er rétt svo að verða hálfnuð en það sem ég er búin að lesa lofar góðu og ég held þetta sé fín ritgerð hjá henni :) Það verður gaman hjá henni þegar hún klárar þetta og eflaust þungu fargi af henni létt.

3 Ummæli:

Blogger Inga sagði...

Ég var einmitt hissa að Ungrú Tansanía kæmist ekki á pall, hún var rosa flott. Hvað er Ragga að læra??

8:57 e.h.  
Blogger Unnur Ylfa sagði...

Já nákvæmlega mér fannst Tansanía svo mikið krútt og svolítið lík Brandy (fannst mér) en Ragga er í CBS í Köben í master í supply chain management (vörustjórnun)

9:05 f.h.  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Já það verður mikill léttir þegar þetta verður búið. Get ekki beðið! En takk kærlega aftur fyrir að nenna að lesa þetta yfir fyrir mig :)

1:52 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Heim