mánudagur, nóvember 21, 2005

Vorum í sumarbústað alla helgina og vá hvað það var eitthvað notalegt að komast aðeins í burtu og slappa vel af. Borðuðum góðan mat, fórum í pottinn, drukkum rauðvín, hvítvín og bjór, lásum, kjöftuðum, sváfum, ég horfði á nokkra desperate houswifes þætti í seríu 2. Ingvi og Karen kíktu til okkar á laugardaginn og við Ingvi elduðum og Karen og Þröstur vöskuðu upp :)

Það er akkúrat mánuður í afmælið mitt í dag :) ég verð samt að viðurkenna að ég er á smá bömmer yfir því að búa ennþá heima hjá mömmu og pabba þegar ég verð 25. en ætli ég sé nokkuð að fara að flytja að heiman á mánuði efast um það.
Spurning að gera það að áramótaheiti að flytja að heiman á næsta ári heheh.. svo ég verði ekki hjá mömmu og pabba þegar ég verð orðin þrítug. Æ það er samt ósköp gott að hafa þau á efri hæðinni ég get ekki neitað því og ég veit ég hef það rosalega gott en bara einhvern vegin tilhugsunin að vera að verða 25 ára sem manni fannst nú ansi mikið þegar maður var yngri.

2 Ummæli:

Blogger Inga sagði...

Mér finnst þú nú ekki beint búa hjá mömmu og pabba! Ef foreldrar mínir hefðu sér íbúð fyrir mig á neðri hæðinni þá myndi ég búa þar eins lengi og ég mögulega gæti :)

1:16 e.h.  
Blogger Regína sagði...

Sammála Ingu. Þetta er draumastaða, að hafa íbúð útaf fyrir sig en samt með mömmu og pabba rétt hjá.

9:56 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Heim