laugardagur, nóvember 26, 2005

Ég fór á jólahlaðborð með vinnunni í gærkvöldi í Skíðaskálann í Hverdölum. Við stelpurnar byrjuðum kl. 6 og mættum í vísindaferð sem var í bankanum svona til að hita okkur aðeins upp. Svo var haldið upp í skíðaskála þar sem var þvílíkt góður matur og maður át alveg á sig gat og dansað og spjallað (var hljómsveit á staðnum). Komum í bæinn hálf 1 og lág þá leiðin á Óliver þar sem var fullt af fólki og mjög skemmtilegt, ég kíkti líka á Pravda en endaði svo kvöldið á að fá mér einn Jón sem er alveg ómissandi eftir gott djamm hehe...

Í dag erum við Oddný búnar að labba niður Laugaveginn og var alveg fullt af fólki, rosalega nice að skreppa svona aðeins niður í bæ og setjast inn á kaffihús og kíkja í búðir.

6 Ummæli:

Blogger Unnur Ylfa sagði...

Góða ferð og takk sömuleiðis fyrir laugardaginn þetta var rosa gaman. Ég tek frá 13. og 14. des fyrir jólahittinginn :)

9:28 e.h.  
Anonymous Nafnlaus sagði...

haha, góð! fékkst þér jÓN eftir djammið..hehe.
En já, ég og Oddny vorum búnar að plana 14.des, því Oddný kemur 13.des og ég fer út 15.
Hlakka svo til að hitta ykkur þá, því þá eru prófin búin(12.des) og jólin alveg að koma:) og þá einungis nokkrir dagar í uppáhalds litlu frændur í norge og skíðin/bretti með famelíunni í Austura:) Já, var ekki búin að segja ykkur það, Lena sys kemur líka með:)
Jæja, farin í lúllið.
Knús frá mér

12:07 f.h.  
Anonymous Nafnlaus sagði...

haha, góð! fékkst þér jÓN eftir djammið..heheh;)
En já ég og Oddný vorum búnar að plana 14.des því hún kemur 13. og ég er búin í prófum 12.des og fer svo út 15.des:) OH hvað ég hlakka til að hitta ykkur þá, þá verða þessi ljótu próf búin og jólin alveg að koma:) Hlakka svo til að sjá uppáhaldin mín, litlu frændur í norge og svo fara á skíðin/bretti í Austria með famelíunni! Já Lena sys kemur líka með.
En hafðu það best unnsa mín..heyrumst,always:)
knús

12:11 f.h.  
Anonymous Nafnlaus sagði...

hehe, Austura..= Austria;)

12:12 f.h.  
Anonymous Nafnlaus sagði...

hahah, ég er að missa mig hérna í commentunum...hahhah. netið datt sko út, þannig ég hélt að fyrsta commentið hafi dottið út...það datt út..anyways, Later

12:13 f.h.  
Anonymous Nafnlaus sagði...

haha, góð! fékkst þér jÓN eftir djammið..hehe.
En já, ég og Oddny vorum búnar að plana 14.des, því Oddný kemur 13.des og ég fer út 15.
Hlakka svo til að hitta ykkur þá, því þá eru prófin búin(12.des) og jólin alveg að koma:) og þá einungis nokkrir dagar í uppáhalds litlu frændur í norge og skíðin/bretti með famelíunni í Austura:) Já, var ekki búin að segja ykkur það, Lena sys kemur líka með:)
Jæja, farin í lúllið.
Knús frá mér

12:15 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Heim