Gleðilegt ár og takk fyrir það gamla.
Ég held ég verði aðeins að taka mig á í blogginu þar sem enn fleiri eru farnir af landi brott. Unnur og Kiddi fluttu til London á fimmtudaginn og bætti ég við link á síðuna þeirra hérna til hliðar. Það fækkar og fækkar í saumaklúbbnum okkar og erum við bara 2 af 6 ennþá í Reykjavík þ.e. ég og Inga. Petrína býr á Bifröst, Regína í Köben, Unnur í London og Sæunn í Californiu.
Spurning um að fara að hafa bara svona skype saumó :)
Árið hefur annars byrjað bara ágætlega, janúar á samt eftir að vera frekar strembinn þar sem það á eftir að vera þvílíkt mikið að gera í vinnunni hjá mér. Ég sé eiginlega varla fram á að gera neitt nema vinna alla daga til 31. janúar takk fyrir. Það er engin miskunn.

5 Ummæli:
Spurning að koma sér úr "Borg óttans" eins og við hinar;) En þar til kemur að því þá er það saumó á skypinu.
Ég styð skype-saumó!
Mér líst vel á skype saumó..
Er ekki bara málið að finna eitthvert kvöld í hverri viku og þær bara mæta á spjallið sem geta :)
Gleðilegt ár til ykkar líka...sakna ykkar allra en hver veit nema við birtumst einhvern daginn. Og eins og þið vitið þá eruð þið ávallt velkomin í heimsókn til okkar. Biðjum að heilsa Þresti...
Aðalheiður og Davíð
Skrifa ummæli
<< Heim