Jæja þá er lífið loksins að fara að ganga sinn vanagang aftur eftir þetta líka vinnumaraþon sem ég hef verið í síðustu vikurnar. En það er alltaf fín stemning í þessum törnum hjá okkur og ótrúlegt hvað allir eru alltaf jákvæðir og hressir þó svo að svefninn hafi ekki verið upp á marga fiska og unnið út í alveg hið óendanlega. En sem betur fer uppskerum við það sem við sáum og hafa æðstu menn komið persónulega til okkar og þakkað fyrir og send mail sem er að sjálfsögðu mjög gaman að heyra.
En stefnan er tekin norður á Akureyri um helgina þar sem skíðin verða með í för og er planið að fara að heimsækja hana Oddnýju og eyða helginni með henni og Söru sem á eftir að vera rosa gaman.
Annars held ég að febrúar eigi bara eftir að vera hinn fínasti mánuður, strax komið fullt af plönum í að hitta alla sem maður hefur vanrækt síðustu vikurnar sem er bara gaman.

4 Ummæli:
Skemmtu þér rosa vel á Akureyri, farðu varlega í brekkunum!
Góða skemmtun á Akureyri.....
Takk fyrir það, ég var mætt í vinnuna fyrir allar aldir í morgun því planið er að fara kl. 3 og leggja strax af stað. Við Sara munum keyra saman og vonandi náum við að koma fyrir Idolið. Ég hef eiginlega ekki séð neinn þátt en er að hugsa um að byrja að horfa núna :) Hafið það sömuleiðis gott um helgina.
Kv.
Unnur Ylfa
Jæja, hvernig var svo á Akureyri?
Skrifa ummæli
<< Heim