Ég hef ekki ennþá komist að því hver gaf mér blómið sem beið mín. En ástæðan fyrir þessu er sú að það er svona leynivinavika þar sem árshátíðin er um helgina. Leynivinurinn minn er einn Þjóðverji. En þetta er mjög gaman og spennandi.
Svo er það bara London á morgun og mun ég eyða helginni þar. Ég get varla beðið eftir því að hitta saumaklúbbsskvísurnar. Við í rauninni stofnuðum saumaklúbbinn eftir að hafa verið allar saman í Austurríki sumarið 1998 sem var alveg frábær ferð í alla staði. Þar sem við búum ekki allar í sama landinu er fínt að nýta tækifærið og skreppa aðeins út.
Ég veit að þessi helgi á eftir að vera alveg ógleymanleg, á laugardaginn er svo sjálfur árshátíðardagur saumaklúbbsins og eru Inga og Unnur Eir búnar að plana hann og það verður spennandi að vita hvað við munum gera.
Svo munum við eflaust rölta um götur Lundúnar, skoða okkur um, fara á kaffihús, út að borða og fleira.

3 Ummæli:
Þetta verður ótrúlega gaman hjá okkur.. hlakka þvííííílíkt til!
Góða skemmtun í London :)
Thanx, já alveg brjálað að gera hjá manni hehe... en ég hlakka svoo til að skreppa til London á morgun og líka vera með svona frábæru fólki það bara hreinlega getur ekkert klikkað :)
Skrifa ummæli
<< Heim